Jæja, nú eru allir örugglega löngu hættir að fylgjast með, hehe. Að vissu leyti er það bara gott því að allt í einu vissi bara alltof margir af þessu bloggi og nafnleyndin mín alveg horfin. Ég semsagt datt alveg út úr þessu í lok sept/byrjun okt. Ákvað að byrja aftur í átaki þann 16. janúar og fór þá í gsa samtökin. Var búin að bæta aftur á mig 8 kg af þeim sem ég var búin að losa mig við. Ég var 33 daga í gsa og þó að ég hafi fílað það alveg í botn að mestu leyti þá var eitthvað sem ég var ekki alveg að höndla við þá leið, þannig ég tók þá ákvörðun að fara strax yfir á danska. Ég hef alltaf möguleikann á að fara aftur yfir til gsa ef þetta gengur ekki upp, en þar missti ég 7,8 kg á einum mánuði.
Ég er samt léttari núna en þegar ég hætti þannig það er bara plús. Á morgun er svo fyrsti dagurinn á danska aftur. Þarf aðeins að bursta af kunnáttunni, en það ætti að koma fljótlega.
Það er tilvalið að setja upp tickerinn aftur og sjá hvernig staðan er núna frá upphafi
)

bolla2beib skrifaði 


