Átakið mitt!

Í kjölfarið af því að ég er byrjuð í átaki ætla ég að stofna smá blogg.

Ég byrjaði hjá dönsku vigtarráðgjöfunum núna 4. júlí, fór í vigtun og fékk eiginlega hálfgert sjokk þegar ég sá töluna mína. Ég byrjaði á kúrnum núna á mánudaginn þó ég hefði farið í vigtun fyrr þar sem ég var ekki í bænum og var að plana stóran viðburð.

Ég fór svo í vigtun núna á miðvikudaginn og mér til mikillar ánægju voru samt 800 gr farin :D jeij! Það er þó miiiiikið eftir, en ég er búin að halda mig alfarið við mataræðið og ekkert búin að svindla, ekki neitt! og ég er bara ofboðslega stolt af mér!!

Planið mitt er að fara niður í 75kg sem þýðir að ég þarf að missa 67kg í viðbót. Rosalega finnst mér það scary tilhugsun að ég sé með meðalmanneskju utan á mér sem ég þarf að losna við! úfff!!!

Ég ætla að byrja að æfa þegar ég byrja að vinna aftur eftir sumarfrí, en, býst reyndar við að það verði ekki fyrr en einhvern tíman í september, en maður verður líka að taka eitt skref í einu.

Jæja, læt þetta nægja í bili.

Skildu eftir svar