Já, ég verð að segja það! Fór í húsdýragarðinn með æskuvinum mínum í dag. Þegar leiðin lá yfir í fjölskyldugarðinn þá var ákveðið að grilla pylsur (klukkan var um 4). Ég ákvað að grilla pylsur handa manninum mínum og dóttur og fékk mér ekkert. Þrátt fyrir bakkelsi af ýmsum tegundum af möffins, kexi og pylsum fékk ég mér ekkert nema kristal! Svo var haldið heim til einnar fjölskyldunnar að grilla. Í kvöldmatnum fékk ég mér bara fullt af grænmeti (alveg 3/4 af disknum) og kjöt, þrátt fyrir að grillað hefði verið grænmeti penslað barbeque sósu, rjómapiparostasósa og fleira góðgæti í boði.
Í eftirrétt voru svo ís og ávextir og ég ákvað að geyma ávextina mína og ísinn þar til ég kæmi heim og gæti fengið mér DDV ís bara
Ég var bara rosalega stolt af mér að standast allar þessar freistingar
Over and out
júlí 22, 2007 klukkan 1:43 pm |
Glæsilegt
Ohh svo gaman að standast freistingarnar. Og miklu betri tilfinning heldur en ef maður hefði fengið smér “bara smá”.
júlí 22, 2007 klukkan 4:58 pm |
Já, 100% dagar, úff hvað þeir eru góð tilfinning. 1-0 fyrir þér
júlí 23, 2007 klukkan 7:57 am |
Algjörlega frábært hjá þér! Þú ert greinilega mjög einbeitt í þessu
júlí 24, 2007 klukkan 7:29 pm |
Frábært, ég stóðst ekki þessa freistingu, fékk mér tvær pizzusneiðar um daginn!