Jæja, þá er vigtunin búin í dag. Ég gat ekki verið á fundinum þar sem pössunin mín brást. Ég var samt voða ánægð, 1,7 farið i viðbót og þá í heildina 5,3! vííí! Þannig ég er strax búin að ná fyrsta markmiðinu mínu á tveimur og hálfri viku
Þetta er samt búin að vera erfið vika, sérstaklega helgin. Á sunnudaginn (eftir að hafa staðist freistingar laugardagsins) þá var ákveðið með stuttum fyrirvara að foreldrar mínir og systkini kæmu í mat. Þannig ég eldaði þetta gómsæta lambalæri með frægu rjómapiparostavilltusósunni minni, brúnaðar kartöflur og tilheyrandi. Var svo með ís og ávexti í eftirrétt. Ég þó fékk mér enga sósu og tók frá kartöflur fyrir mig áður en ég brúnaði og fékk mér svo bara DDV ís (sem mér finnst rosa góður reyndar).
Svo ótrúlegt sem það virðist þá virðist heilinn eitthvað stilltur inn á að ég bara geti ekki borðað þetta lengur. Svona eins og ég megi ekki borða þetta, þá gerist eitthvað eins og ég fái óþol eða eitthvað, haha! En já, það allavegana virkar
Ég vona að allir verði ánægðir með sínar tölur í dag!
Au revoir!

júlí 25, 2007 klukkan 1:43 pm |
Vá æðislegt! 5,3 kg á tæpum 3 vikum! Til hamingju
júlí 25, 2007 klukkan 2:04 pm |
Vá maður! Ekkert smá flott! Þú verður orðin beib in no time ef þú heldur svona áfram!
júlí 25, 2007 klukkan 2:09 pm |
vá það er ekkert smá
Til hamingju með árangurinn.
júlí 25, 2007 klukkan 11:44 pm |
Allt að gerast! Til hamingju! Ætlarðu eitthvað að verðlauna þig?
júlí 26, 2007 klukkan 9:59 am |
Planið var að fara í fótsnyrtingu eða andlitssnyrtingu, en þar sem ég er að fara í ferðalag á morgun þá verður það aaaðeins að bíða, hehe. Aldrei að vita nema ég finni eitthvað skemmtilegt dekur á leiðinni hringinn í kringum landið
júlí 30, 2007 klukkan 9:16 pm |
Til hamingju með árangurinn
og staðfestuna í matarboðinu.
Baráttukveðja
júlí 31, 2007 klukkan 8:22 pm |
Hæ skvís, gengur ekki vel? Ertu nokkuð horfin?
ágúst 1, 2007 klukkan 12:07 pm |
hæhæ.. til hamingju með árangurinn! gangi þér vel:)