Jæja, ég skellti mér í vigtun í dag. Hafði eins og vanalega ekki pössun, þannig ég gat ekki verið á fundinum
Veit eiginlega ekki hvernig ég get reddað því þannig ég geti mætt á fundi, en ég ætla að leggja höfuðið í bleyti.
En allavegana, þá var bara 1 kg farið. Var pinku svekkt þar sem ég var léttari á vigtinni í gær hérna heima en í dag, en svona getur verið mikill dagamunur á manni. Búin að vera á milljón í dag, enda fyrsti dagurinn eftir sumarfrí. Verið að taka upp úr kössum og hreiðra um sig á ný í stofunni minni og undirbúa skólastarfið.
Ég ætla að vera ofurdugleg að skrifa allt niður, er ekki búin að skrifa neina matardagbók síðan ég kom heim, kannski munar svona rosalega um það. Er samt að passa mig rosalega og passa að klára alla skammta. En jæja, ég ætla að horfa á björtu hliðina og hugsa um að ég missti kg
Ég ætla að setja inn matardagbókina mína hérna á hverjum degi held ég til að athuga hvort meiri léttingur verður í næstu viku
Þar til næst

![]()
ágúst 15, 2007 klukkan 9:06 pm |
Til hamingju með léttinginn!! 1kg er mjög gott!
ágúst 15, 2007 klukkan 10:17 pm |
Já, sérstaklega miðað við að þú varst á ferðalagi
Mér finnst að þú megir vera mjög stolt af þessu
ágúst 15, 2007 klukkan 10:44 pm |
TIl hamingju 1 kg er bara alveg æðislegt. Mátt vera ánægð með það
ágúst 15, 2007 klukkan 11:00 pm |
1 kg er 1 kg! Þetta er flott
ágúst 16, 2007 klukkan 1:18 am |
Mér finnst sko eitt kíló ekkert slor! Til hamingju með léttinginn.
ágúst 16, 2007 klukkan 11:17 am |
Vá til hamingju með að losna við þetta kíló sem kemur ALDREI til baka aftur … og kíló er nú ekkert slor !!!
ágúst 16, 2007 klukkan 6:52 pm |
Kíló er bara flott
maður er léttari daginn eftir fiskát en t.d. kjöt þannig að svona er þetta bara
1 kg á viku er mjög fínt
ágúst 16, 2007 klukkan 7:45 pm |
Hey ú, þá ætla ég bara að fara í vigtun á morgun
Var að enda við að borða fisk, hehe.
En takk æðislega stelpur, þið eruð æði! Svo ómetanlegt að fá koment!