Já, enn og aftur var komið að vigtuninni. Ég ákvað að bruna eftir skólasetninguna hjá mér og í vigtun áður en ég héldi áfram að vinna.
Það voru 2,4 kíló sem kvöddu í þessari viku
Þeirra verður ekki saknað, hehe. Ég er ekkert smá glöð
Ég stend reyndar frammi fyrir smá challange núna, því að ég þarf að fara í skólann minn (er í skóla ásamt því að kenna í skóla) á morgun og hinn og gista. Mun ekki hafa aðstöðu til að vera með mitt fæði nema einfaldlega geyma það út í bíl. Ég verð bara að reyna að gera það besta úr þessu. Velja hollt úr því óholla og svona
Ég vona að allir hafi fengið jákvæðar vigtartölur!
Kv,
Rosa glaða manneskjan, híhí

ágúst 22, 2007 klukkan 1:42 pm |
Frábært!!! Til hamingju
ágúst 22, 2007 klukkan 2:48 pm |
VÁ ekkert smá flott hjá þér !!
en þú hlýtur að geta bara beðið um að fá að geyma matinn þinn í kæli .. ég myndi allavega bara spurja að því
gangi þér svona vel áfram ….
ágúst 22, 2007 klukkan 4:44 pm |
Váá 2,4 kíló! til hamingju!
))
ágúst 23, 2007 klukkan 2:13 am |
Flott hjá þér!!! Gangi þér vel að velja og hafna.
ágúst 23, 2007 klukkan 7:13 am |
váááá 2, 4
æði til hamingju
ágúst 23, 2007 klukkan 1:15 pm |
Vá til hamingju en frábær árangur.
september 2, 2007 klukkan 9:49 pm |
Frábært og aldeilis glæsilegt hjá þér vinan
Gángi þér vel áfram og fyrr en varir þá eru allar nýju buxurnar of stórar
september 3, 2007 klukkan 2:50 pm |
Ertu nokkuð hætt rófan þín? Sakna þín!