Það voru 2,3 kíló sem kvöddu í þessari viku og þar af leiðandi eru 11 kg búin að kveðja!! JEIJ!!!! Ég var ekkert smá glöð
Fékk þessa fínu lyklakippu sem verðlaun, sem var frekar fyndið þvi að ég var akkurat að hugsa á leiðinni að ég þyrfti að fara að finna mér einhverja lyklakippu þar sem mín brotnaði um daginn. Svona er lífið skondið stundum.
Ég hef engan tíma haft til að setjast niður og blogga. Búið að vera brjálað að gera í vinnunni hjá mér, skólinn á milljón, nóg að gera með tvö börn og svo ofan á þetta er maðurinn minn að fara halda upp á þrítugsafmælið sitt um helgina *púff* Ég er vanalega uppgefin á kvöldin og skríð alltof seint inn í rúm. Ég er bara að stelast núna til að skrifa smá og svo er ég sest aftur við lesturinn og ritgerðarsmíði!
Já, ég er búin að skipta um vigtunartíma vegna vinnunnar. Ég fór alltaf í hádeginu í sumarfríinu, en þar sem ég er að vinna til 5 á miðvikudögum þá gengur það ekki upp að vera með snúlluna mína í pössun frá korter fyrir 8 og til 7 á kvöldin. Þannig þriðjudagar kl. 8 henta mér ekkert smá vel og verð framvegis á þeim tíma í vigtun
Gangi ykkur vel! Ég reyni að skrifa eins og ég get
*smooooch*

Sjáið hvað fiðrildið mitt er farið að fljúga langt! Hlakka ekkert smá til þegar það stendur fjörtíu og eitthvað kíló to go! híhí
september 5, 2007 klukkan 10:01 am |
Glæsilegt hjá þér! *klappklapp* Ofsalega dugleg!
september 5, 2007 klukkan 11:32 am |
Til hamingju! Frábær árangur
september 5, 2007 klukkan 4:38 pm |
Váá 2,3 kg á einni viku.. hvernig ferðu að þessu? *öfund*;)
september 5, 2007 klukkan 7:34 pm |
Dugleg ertu kona!
september 6, 2007 klukkan 7:03 am |
vááá mikið rosalega ertu dugleg kona, innilega til hamingju með árangurinn
þetta er alveg æði jeg hefði ekkert á móti að geta misst svona mikið á einni viku
stendur þig vel, halda svona afram.
september 8, 2007 klukkan 12:37 pm |
VÁÁÁÁ! Frábært! Til hamingju
Já og *klappklappklappklapp* fyrir 10 kílóa áfanganum
september 9, 2007 klukkan 5:29 pm |
Dugleg ertu
Til hamingju með stóra áfangan.
september 22, 2007 klukkan 1:47 pm |
Vá ekkert smá flott ,,, en á ekkert að fara að blogga aftur ??
september 24, 2007 klukkan 1:28 pm |
Til hamingju! Ætlarðu eitthvað að verðlauna þig?
…. kannski bara með góðum lúr eftir að törnin er búin?
október 1, 2007 klukkan 2:07 pm |
Hva ertu hætt skvís? bannað að hætta
október 2, 2007 klukkan 4:36 pm |
Ertu nokkuð hætt? Vona ekki!