Jæja, nú eru allir örugglega löngu hættir að fylgjast með, hehe. Að vissu leyti er það bara gott því að allt í einu vissi bara alltof margir af þessu bloggi og nafnleyndin mín alveg horfin. Ég semsagt datt alveg út úr þessu í lok sept/byrjun okt. Ákvað að byrja aftur í átaki þann 16. janúar og fór þá í gsa samtökin. Var búin að bæta aftur á mig 8 kg af þeim sem ég var búin að losa mig við. Ég var 33 daga í gsa og þó að ég hafi fílað það alveg í botn að mestu leyti þá var eitthvað sem ég var ekki alveg að höndla við þá leið, þannig ég tók þá ákvörðun að fara strax yfir á danska. Ég hef alltaf möguleikann á að fara aftur yfir til gsa ef þetta gengur ekki upp, en þar missti ég 7,8 kg á einum mánuði.
Ég er samt léttari núna en þegar ég hætti þannig það er bara plús. Á morgun er svo fyrsti dagurinn á danska aftur. Þarf aðeins að bursta af kunnáttunni, en það ætti að koma fljótlega.
Það er tilvalið að setja upp tickerinn aftur og sjá hvernig staðan er núna frá upphafi
)

febrúar 28, 2008 klukkan 9:09 am |
Held bara að nafnleynd á Íslandi sé borin von.
En sá danski er flottur. Og ekki annað að sjá en að þú sért á réttri leið.
Þetta bara tekur tíma, þrautseigju og þolinmæði.
Bestu kveðjur frá gömlum svepp.
febrúar 29, 2008 klukkan 6:03 pm |
Velkomin aftur.
mars 4, 2008 klukkan 6:14 pm |
Non so cosa ci faccio qui, non ho capito nemmeno una parola di quello che c’è scritto ma il meme è il meme…quindi un saluto e svolazzo via
mars 7, 2008 klukkan 9:17 am |
Velkomin aftur..hvernig gengur?