Vigtun nr. 6

september 4, 2007

Það voru 2,3 kíló sem kvöddu í þessari viku og þar af leiðandi eru 11 kg búin að kveðja!! JEIJ!!!! Ég var ekkert smá glöð :D Fékk þessa fínu lyklakippu sem verðlaun, sem var frekar fyndið þvi að ég var akkurat að hugsa á leiðinni að ég þyrfti að fara að finna mér einhverja lyklakippu þar sem mín brotnaði um daginn. Svona er lífið skondið stundum.

Ég hef engan tíma haft til að setjast niður og blogga. Búið að vera brjálað að gera í vinnunni hjá mér, skólinn á milljón, nóg að gera með tvö börn og svo ofan á þetta er maðurinn minn að fara halda upp á þrítugsafmælið sitt um helgina *púff* Ég er vanalega uppgefin á kvöldin og skríð alltof seint inn í rúm. Ég er bara að stelast núna til að skrifa smá og svo er ég sest aftur við lesturinn og ritgerðarsmíði!

Já, ég er búin að skipta um vigtunartíma vegna vinnunnar. Ég fór alltaf í hádeginu í sumarfríinu, en þar sem ég er að vinna til 5 á miðvikudögum þá gengur það ekki upp að vera með snúlluna mína í pössun frá korter fyrir 8 og til 7 á kvöldin. Þannig þriðjudagar kl. 8 henta mér ekkert smá vel og verð framvegis á þeim tíma í vigtun :)

Gangi ykkur vel! Ég reyni að skrifa eins og ég get :D

*smooooch*

Sjáið hvað fiðrildið mitt er farið að fljúga langt! Hlakka ekkert smá til þegar það stendur fjörtíu og eitthvað kíló to go! híhí


Vigtun!

ágúst 22, 2007

Já, enn og aftur var komið að vigtuninni. Ég ákvað að bruna eftir skólasetninguna hjá mér og í vigtun áður en ég héldi áfram að vinna.

Það voru 2,4 kíló sem kvöddu í þessari viku :D Þeirra verður ekki saknað, hehe. Ég er ekkert smá glöð :D

 Ég stend reyndar frammi fyrir smá challange núna, því að ég þarf að fara í skólann minn (er í skóla ásamt því að kenna í skóla) á  morgun og hinn og gista. Mun ekki hafa aðstöðu til að vera með mitt fæði nema einfaldlega geyma það út í bíl. Ég verð bara að reyna að gera það besta úr þessu. Velja hollt úr því óholla og svona :)

 Ég vona að allir hafi fengið jákvæðar vigtartölur!

 Kv,
Rosa glaða manneskjan, híhí


Mont!

ágúst 18, 2007

Nú verð ég að monta mig smá! Ég uppgötvaði svolítið mikið svalt í gærmorgun, ég passa í allar buxurnar mínar sem ég notaði áður en ég varð ólétt af stelpunni minni! Buxur sem ég hef ekki getað notað í 2 ár! Jii hvað ég varð glöð enda margar buxurnar mínar farnar að poka ansi mikið.

Þannig núna á ég bara fullt af “nýjum” buxum :D víííí!!!


Vigtun

ágúst 15, 2007

Jæja, ég skellti mér í vigtun í dag. Hafði eins og vanalega ekki pössun, þannig ég gat ekki verið á fundinum :(

Veit eiginlega ekki hvernig ég get reddað því þannig ég geti mætt á fundi, en ég ætla að leggja höfuðið í bleyti.

En allavegana, þá var bara 1 kg farið. Var pinku svekkt þar sem ég var léttari á vigtinni í gær hérna heima en í dag, en svona getur verið mikill dagamunur á manni. Búin að vera á milljón í dag, enda fyrsti dagurinn eftir sumarfrí. Verið að taka upp úr kössum og hreiðra um sig á ný í stofunni minni og undirbúa skólastarfið.

Ég ætla að vera ofurdugleg að skrifa allt niður, er ekki búin að skrifa neina matardagbók síðan ég kom heim, kannski munar svona rosalega um það. Er samt að passa mig rosalega og passa að klára alla skammta. En jæja, ég ætla að horfa á björtu hliðina og hugsa um að ég missti kg :)

Ég ætla að setja inn matardagbókina mína hérna á hverjum degi held ég til að athuga hvort meiri léttingur verður í næstu viku :)

Þar til næst :D


Bloggleti

ágúst 10, 2007

Já, ég hef ekki alveg náð að gíra mig upp í að blogga fyrr en núna. Ferðalagið var erfitt fyrir danska kúrinn. Keyrt var oft i hádeginu þannig sú máltíð átti til að fara í rugl þó að restin hafi haldist alveg. Ég syndgaði nokkrum sinnum í lok ferðarinnar (verð að hafa þetta extra dramatískt sko!). Ég stalst í nokkrar dorritos flögur, einn daim ís fór inn fyrir mínar varir og fékk mér 2 msk af piparsósu með matreiðslurjóma og piparosti og fekk mér alltof mikið af brauði síðustu tvo dagana. Borðaði lika alltof mikið af kjöti, enda gekk erfiðlega að fá fólk til að grilla fisk og kjúlla. Stalst líka í 1 bjór og smá rauðvín.

Þetta var alveg nóg til að brennslan var ekki upp á sitt besta og fann ég alveg fyrir því þegar ég kom heim. Ég var bara farin að þrá að komast aftur á mataræðið mitt og líða vel aftur! Að vera í 11 daga ferðalagi með fólki sem borðar nammi og önnur sætindi allan daginn nánast stanslaust var bara ERFITT og ég er stolt af því að hafa staðist að að fá mér sælgæti og önnur sætindi (fyrir utan það sem ég taldi upp).

Ég treysti mér aftur á móti ekki til að fara í vigtunina þó ég hafi ekkert þyngst, ég veit að ég hefði orðið svo rosalega leið að fara og hafa staðið í stað eða jafnvel verra að ég ákvað að geyma það bara þar til í næstu viku. Ég er búin að eiga 100% DDV daga síðan ég kom heim og úffff hvað það er gott! Líðanin er miklu betri og ég er orkumeiri en áður. Byrjaði líka að taka lýsi og kalk og hollustan alveg í fyrirrúmi!

Annars þá var alveg meiriháttar í ferðalaginu og stóð uppúr heimsókn okkar hjónanna í Jökulsárlón í þvílíku blíðskaparveðri.

Ég vona að þið hafið það allar rosalega gott um helgina. Ég ætla að skella mér í gay pride gönguna á morgun og njóta þess að vera með fjölskyldunni.

Lofa að vera duglegri að blogga! híhí

*Knúúús*


Ekki horfin og ekki hætt!

ágúst 2, 2007

Í augnablikinu er ég utan þjónustusvæðis eða allar línur uppteknar!

Síðasta föstudag fórum við fjölskyldan ásamt foreldrum og systrum mínum i hringferð um landið. Ég hef haldið mig við danska kúrinn 98% af tímanum, en það er pinku erfitt svona á ferð um landið með 6 sælgætismaulurum (þó ég hafi ekki dottið ofan í sælgætisát þó erfitt hafi verið að standast freistingarnar). Ég fór því ekki í vigtun í gær og fer ekki aftur fyrr en næsta miðvikudag.

Ég kem heim á mánudaginn og þá byrja ég að blogga og svona eins og venjulega :)

Vona að allar mælingarnar hafi komið út vel hjá ykkur (hef ekki tíma í augnablikinu fyrir bloggrúnt) og allir eigi góða verslunarmannahelgi!

Au revoir!


Vigtun!

júlí 25, 2007

Jæja, þá er vigtunin búin í dag. Ég gat ekki verið á fundinum þar sem pössunin mín brást. Ég var samt voða ánægð, 1,7 farið i viðbót og þá í heildina 5,3! vííí! Þannig ég er strax búin að ná fyrsta markmiðinu mínu á tveimur og hálfri viku :D

Þetta er samt búin að vera erfið vika, sérstaklega helgin. Á sunnudaginn (eftir að hafa staðist freistingar laugardagsins) þá var ákveðið með stuttum fyrirvara að foreldrar mínir og systkini kæmu í mat. Þannig ég eldaði þetta gómsæta lambalæri með frægu rjómapiparostavilltusósunni minni, brúnaðar kartöflur og tilheyrandi. Var svo með ís og ávexti í eftirrétt. Ég þó fékk mér enga sósu og tók frá kartöflur fyrir mig áður en ég brúnaði og fékk mér svo bara DDV ís (sem mér finnst rosa góður reyndar).

Svo ótrúlegt sem það virðist þá virðist heilinn eitthvað stilltur inn á að ég bara geti ekki borðað þetta lengur. Svona eins og ég megi ekki borða þetta, þá gerist eitthvað eins og ég fái óþol eða eitthvað, haha! En já, það allavegana virkar :)

Ég vona að allir verði ánægðir með sínar tölur í dag!

Au revoir!


Ég er stolt af mér!

júlí 21, 2007

Já, ég verð að segja það! Fór í húsdýragarðinn með æskuvinum mínum í dag. Þegar leiðin lá yfir í fjölskyldugarðinn þá var ákveðið að grilla pylsur (klukkan var um 4). Ég ákvað að grilla pylsur handa manninum mínum og dóttur og fékk mér ekkert. Þrátt fyrir bakkelsi af ýmsum tegundum af möffins, kexi og pylsum fékk ég mér ekkert nema kristal! Svo var haldið heim til einnar fjölskyldunnar að grilla. Í kvöldmatnum fékk ég mér bara fullt af grænmeti (alveg 3/4 af disknum) og kjöt, þrátt fyrir að grillað hefði verið grænmeti penslað barbeque sósu, rjómapiparostasósa og fleira góðgæti í boði.

Í eftirrétt voru svo ís og ávextir og ég ákvað að geyma ávextina mína og ísinn þar til ég kæmi heim og gæti fengið mér DDV ís bara :D

Ég var bara rosalega stolt af mér að standast allar þessar freistingar :)

Over and out


Smá spurning!

júlí 20, 2007

Elsku stelpur!

Vitið þið, ef mig langar í fajhitas í kvöld, hvernig virkar það? Má ég sleppa brauðinu í dag og fá mér þá 60gr af fajhitas kökum í kvöld eða hvernig virkar svona?


Dagurinn í dag

júlí 20, 2007

Var bara rosalega góður :) Við mæðgurnar höfðum það rosa gott hérna heima hjá okkur.

DDV-lega séð stóð ég mig bara rosalega vel og kláraði allt og ekkert auka eða svindl :) Ég verð bara að segja að ég er svo hissa hvað þetta er miklu auðveldara en ég hélt vanalega er ég löngu sprungin á svona kúrum og farin að svindla. En tæplega tvær vikur og bara engin sykurlöngun! Eina sem hefur verið erfitt að þegar það hefur verið heitt þá langar mig í ís, en eftir að hafa smakkað DDV súkkulaðiísinn í gær þá verður það EKKI vandamál. Ísinn var ekkert smá góður! Setti jarðaber, bláber og ferskan ananas með og naaaaaammi!

Ég byrjaði samt ekki ein á danska kúrnum þó ég sé ein núna. Í fyrstu tvö  skiptin þá var pabbi minn með mér, en hann vildi ekki halda áfram með mér. Fannst of erfitt að byrja svona í sumarfríinu sínu. Ég og fjölskyldan erum nú samt að fara ferðast með þeim í 10 daga þannig ég verð bara ein í hollustunni, tek bara með mér fullt af ávöxtum og þá verð ég góð, híhí

Verð samt að segja frá einu algerlega ótengdu átakinu mínu. Ég á svo yndislega góða dóttur sem kom mér svo á óvart í dag. Ég var á fullu að taka til í eldhúsinu og hún kemur röltandi úr herberginu sínu og ég segi við hana: æji ástin mín, viltu ekki fara leika inn í herbergi svo mamma geti tekið til. Litla snúllan sneri við með það sama og fór inn í herbergi að leika voðalega góð! Þetta væri kannski ekki merkilegt nema að dóttir min er rétt rúmlega 16 mánaða :D Þetta var svona áminning til mín hvað hún er farin að skilja mikið af því sem maður segir við hana.

Mig langar að þakka fyrir öll kommentið sem ég hef fengið, þið eruð þvílíkt æði!

Hafið það rosalega gott og GO DDV!!! (híhí)