Gul sósa
Hráefni
1 lítil dós ananas (crushed)
1 dós sýrður rjómi
3 msk létt majónes
1 msk sætt sinnep
2 msk ananas safi
Nokkur korn Season all
Aðferð
Sýrður rjómi settur í skál og þrjár msk af létt majónesi útí. Safi sigtaður frá ananasnum og sett úti ásamt 2 msk af safanum. 1 msk sætt sinnep og hrært vel saman. Bragðbætt með örlítlu season all eða öðru kryddi eftir smekk.
Sósan passar vel með grænmeti, kjúkling, fisk og öllu kjöti.
Ananas Fiskréttur
(Byggt á suðrænum fiskirétti frá cafe Sigrún)
Fyrir 4
Hráefni
1 poki tilda basmati hrísgrjón
7-800gr ýsa
½ box sveppir
1 rauð paprika
1/3 ferskur ananas
Magur ostur, í sneiðum eða rifinn
Sósa
1 dós sýrður rjómi
3 tsk karrí
1-2 dl ananassafi
Aðferð
Hrísgrjónin soðin og sett í botnin á eldföstu móti.Sveppirnir, ananasinn og paprikan skorin niður og stráð yfir hrísgrjónin. (Salta ef fólk vill). Fisknum raðað ofan á og saltaður, pipraður og sitrónupipar. Sósunni hellt yfir og ostur settur ofan á. Sett inn i ofn á 200°í 20-30 mín.
Borið fram með fersku salat og brauði.
Eplafiskur
Fyrir 4
Hráefni
7-800 gr ýsa
2 laukar
Sirka 6-8 stórar gulrætur
2-3 gul epli
Karrí
Olívuolíu til að steikja uppúr.
Magur ostur
Aðferð
Setjið olíu á pönnu, setjið sirka 2 tsk karrí útí og hrærið (eftir smekk hversu mikið karrí er notað). Bætið við gulrótum (söxuðum), lauk (skorinn) og eplum (skorin í bita). Steikið á pönnunni í smá stund þar til það byrjar að mýkjast örlítið. Lækkið á hellunni. Takið fisk og skerið hann í bita. Kryddið hann báðum meginn með salti, pipar og sítrónupipar. Leggið svo fiskinn ofan á grænmetið og eplin. Setjið svo ostsneiðar ofan á fiskinn og látið krauma í 20-25 mínútur.
Gott er að bera fram með hvítlauksbrauði og hrísgrjónum.